Tengslaráðstefna Erasmus+ í Kaupmannahöfn - Nóvember 2015
Í lok nóvember fékk ég það tækifæri að taka þátt í tengslaráðstefnu Erasmus+ sem bar heitið ‘The Challenge of Teaching Entrepreneurship’. Ráðstefnan hófst seint á þriðjudegi með kynningu frá þátttökuþjóðunum og standandi kvöldverði.Við Íslendingarnir kynntum íslenskan mat og landið okkar ásamt því að kynnast réttum og menningu annarra þjóða.
The Icelandic table taking shape at #erasmuscph pic.twitter.com/Uiq6FIHp2u
— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 24, 2015
A good start today at #erasmuscph on entrepreneurship in education. pic.twitter.com/OSZtS1gGRD— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 24, 2015
Hér í Köben er tími á milli funda nýttur í að undirbúa @hourofcode fyrir @arskoli @vskoli og @grskav #menntaspjall pic.twitter.com/OXQWfyu6JK— Ingvi Hrannar (@IngviHrannar) November 24, 2015
Á miðvikudeginum hófst svo fjörið. Markmið ráðstefnunnar var að búa til Erasmus+ umsóknir og tengsl skóla og kennara um alla Evrópu. Um morguninn kynnti Andrés Pétursson okkur fyrir umsóknarferlinu og þar á eftir komu starfsmenn frá Danska frumkvöðlasetrinu og kynntu fyrir okkur grunnhugmyndir frumkvöðlafræða.
Andres telling us about Key Action 2 at #erasmuscph pic.twitter.com/sr2WoTpOKo— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 25, 2015
What is entrepreneurship and entrepreneurship education? #erasmuscph pic.twitter.com/Z0MAEETY9W— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 25, 2015
Eftir hádegið var svo ‘team building activities’ til þess að hjálpa okkur að kynna hugmyndir okkar sem og kynnast hugmyndum annarra. Þetta var gert til þess að búa til teymi sem ynnu svo saman á fimmtudeginum.
Mushrooms, carrots and potatoes at #erasmuscph pic.twitter.com/GbTLC4xbmd— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 25, 2015
Fyrir ráðstefnuna vorum við 3 (Ísland, Svíþjóð og Þýskaland) sem vorum búnir að heyrast í gegnum Twitter og ákveða að vinna saman að verkefni tengdu ‘Entrepreneurial skills’ og þegar við hittumst ákváðum við að útgangspunkturinn yrði verkefni sem ég talaði fyrir eða svokallað ‘Genius Hour’.
Collaboration with @AnnelindDaniel & @thujad6 on 'Entrepreneurial skills' at #erasmuscph pic.twitter.com/LN5Bw3R6uQ— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 25, 2015
Á fimmtudeginum fenguð við svo heilan dag til þess að vinna saman, skipuleggja verkefnið og fara að huga að umsókn. VIð hópinn okkar bættist svo Norsk kona sem vinnur fyrir Sveitarfélag í Noregi. Úr varð grunnhugmynd að mjög áhugaverðu verkefni sem við ætlum að sækja um og vonast til að nái hljómgrunn innan Erasmus+ dómnefndarinnar. Hvort sem hún gerir það eða ekki er ég staðráðinn í að vinna með Genius Hour í þeim skólum sem ég starfa við, en það væri frábært ef við bættust 3 skólar í Evrópu sem væru að vinna á svipuðum nótum. Á föstudeginum kynntu hóparnir svo sínar hugmyndir fyrir öðrum og loks var flogið heim á leið eftir góða dvöl.
Participants presenting their ideas and projects at #erasmuscph pic.twitter.com/a8k8rtEX4X
— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 27, 2015
The EntrepreNerds at #erasmuscph. Looking forward to an exciting project with @thujad6 @AnnelindDaniel pic.twitter.com/pYQwULbClX
— Ingvi H. Omarsson (@IngviOmarsson) November 27, 2015
Fleiri tíst frá ráðstefnunni má finna undir umræðumerkinu #ErasmusCph á Twitter.Ingvi Hrannar, kennsluráðgjafi og verkefnastjóri í UT og skólaþróun.