Við erum að éta börnin okkar

Stephen Mintz bendir á í bók sinni 'The Prime Of Life: A History of Modern Adulthood’ að ungmenni í dag hafa það, á nær alla hefðbundna mælikvarða, betra í dag en nokkru sinni áður. Glæpatíðni er lægri, færri ungmenni reykja, einkunnir eru betri og fleiri útskrifast úr námi nú en nokkru sinni fyrr.Mintz heldur áfram og segir að þau hafa það betur á allan þann hátt sem við getum auðveldlega mælt en hafi það verra á mörgum af þeim sviðum sem raunverulega skipta máli: Ungmenni sýna einkenni þunglyndis fyrr, sjálfsvígum hefur fjölgað, mörg ungmenni sýna einkenni ofálags og virðast einnig mörg hver eiga mjög erfitt að mynda náin sambönd.Þessar rannsóknir Stephen Mintz komu upp í huga mér í vikunni þegar ég var að skoða nýútkomna stundartöflu 16 ára nemanda á 1.ári við Menntaskólann á Akureyri.Svona lítur stundartaflan fyrir vorönnina út:Stundartafla nemanda á 1.ári við Menntaskólann á Akureyri. 8.15-16.30 alla daga, engin valfög, engar listgreinar, 5 mín. á milli kennslustunda og heimavinna í ofanálag. Nokkrir hlutir sem ég stoppaði við:

  • Kennsla hefst 8.15 alla daga og lýkur 16.30 (nema á föstudögum þegar henni lýkur kl. 14.35).
  • Ekkert einasta valfag er á stundartöflunni.
    • Þrátt fyrir að markmið okkar hljóti að vera að hjálpa börnum að finna sitt áhugasvið og sína styrkleika fá þau ekkert að segja um hvað verði kennt.
  • Hér eru engar list-né verkgreinar.
  • Á bilinu 11.55-16.30 voru ekki einu sinni frímínútur og nemendur hafa aðeins 5 mínútur til þess að koma sér á milli kennslustunda
    • …og þar af leiðandi lítið rými til samskipta á milli kennslustunda. Raunveruleg samskipti í raunheimum þar sem þú sest niður eru jú mikilvægari en 5 mínútur til þess að skoða 'snöppin' á hlaupum.
  • 3x50 mínútur í 'heilsu' sem er staðsett í öðru húsi og aðeins 5 mínútur gefnar í næsta tíma...
    • Kannski til þess að ungmennin hlaupi á milli kennslustunda og bæti þannig upp skort á hreyfingu og íþróttakennslu.
  • Ofaná þetta bætist síðan heimavinna í nær öllum fögum í hverri viku.
    • Nema í íþróttum… sem er kannski eina fagið þar sem ætti að vera heimavinna í…

Ég byrjaði á því að tísta áhyggjum mínum til Menntaskólans (@menntaskoli) en ákvað svo að 140 stafir væru bara ekki nóg.Því skrifaði ég þetta stutta blogg. Það snýst um það hvernig við erum að éta börnin okkar.Orðskýring: Eating your youngs: In any society, organization, family, etc., it is normal and expected that the senior members will foster, teach, and bring up their replacements, heirs, children. When a system becomes perverted by greed or a sense of immortality, senior members of an organization can see younger members as a threat instead of a future. As a result they may sabotage the development of their juniors or even find ways to eliminate them altogether, eat or kill their young, destroying the future of the organization in favor immediate, short-term, personal gain.Miðað við þessa stundartöflu hér að ofan virðist lítill tími vera til samskipta á skólatíma, frítími nær enginn og frístundir mæta afgangi.Skólakerfið er einfaldlega að segja að menntun eigi sér helst stað innan kennslustofunnar. En sannleikurinn er sá að hefðbundinn skóli og raunverulegt nám eiga ekkert alltaf saman.Svo virðist sem stefnan sé að geðheilsa, hreyfing, sköpun og frítími ungs fólks eitthvað sem megi missa sín og mikilvægara sé að halda ungmennum við “efnið” í lokuðum kennslustofum fram undir kvöldmat.Það fer ekkert á milli mála í mínum huga að það er slæm hugmynd að troða námsefni framhaldsskólanna, sem áður tók að jafnaði um 4 ár að ljúka, í 3 ár með þeim formerkjum að það dragi í einhvern hátt úr brottfalli.Það má vel vera að þeir veiti framúrskarandi sálfræðiþjónustu til þess að bregðast við álagi á nemendur og vanlíðan... en hreyfing, hollur matur, frítími, fá að gera mistök, að eltast við áhugamál sín og tími með vinum og fjölskyldu er betra en nokkur sálfræðitími (og kostar reyndar mun minna).Skóli getur verið frábær þegar jafnvægi er til staðar. Jafnvægi á milli bóknáms og verknáms, hreyfingar og slökunar, samvinnu og einveru, þess að taka á móti þekkingu og skapa sína eigin svo eitthvað sé nefnt.Til þess að einstaklingur þroskist, finni sig og sína hillu þarf hann tíma til þess, ólíkar upplifanir og rými til þess að gera mistök.

“Running into a pole is a drag, but never being allowed to run into a pole is a DISASTER.”-Daniel Kish

Ég þakka fyrir að hafa fengið tíma og rými til þess í því formlega námi sem ég hef lokið til þessa, fékk að prófa mismunandi hluti, taka minn tíma, hafði rými til að mistakast og sýnt það traust að eiga frítíma í það sem ég vildi. Það besta sem ég gerði á árunum 16-20 ára gerðist heldur ekki inni í skólastofu heldur utan hennar.Við þurfum að vakna og rétta stefnuna af áður en við étum öll börnin. Raunveruleg menntun er svo miklu meira en það sem gerist bara innan fjögurra veggja skólastofunnar.Ingvi Hrannar,kennari, áhugamaður um skólamál og framtíð barnanna okkar.@IngviHrannar@IngviOmarsson

Previous
Previous

Virk eða óvirk notkun á upplýsingatækni

Next
Next

Skjálöggurnar