Varúlfaspilið - Gjöf til kennara og nemenda

Í um 10 ár hef ég átt og spilað Varúlfaspilið reglulega. Varúlfaspilið er ætlað 8-18 leikmönnum, á aldrinum 10-99 ára og tekur einn leikur vanalega um 20-30 mínútur (fer eftir fjölda og hve góðir/æfðir leikmenn eru í að skiptast á skoðunum og standa fyrir máli sínu... en það er einmitt tilgangur leiksins).Í hvert sinn sem ég spila, hvort sem það er með vinum, fjölskyldu eða nemendum, þá læri ég eitthvað nýtt, sé nýja hlið á fólki og skemmti mér alltaf vel.Eftir námskeið hjá mér um daginn, þar sem þátttakendur spiluðu Varúlf saman, datt mér í hug að hanna spjöld sem hægt væri að nota fyrir skóla, kennara eða nemendur að prenta út sjálf á þykkan pappír (báðum megin, í lit). Á hverju spjaldi setti ég leiðbeiningar fyrir hverja persónu, en ekki er skylda að nota allar persónur í hverju spili. Gott er að byrja rólega og hafa aðeins 1 Varúlf og svo hinir eru bæjarbúar og kynna svo hægt og rólega aðrar persónur þegar spilið hefur verið spilað nokkrum sinnum.

Gjöf til kennara, nemenda og skóla

Þar sem ég vil að þetta nái til sem flestra ákvað ég að gefa þetta og getur þú sótt .PDF af þessu hér og prentað út, báum megin, á 6 x A4 blöð af þykkum pappír.

Verði ykkur að góðu.

Varúlfaspil_6xA4_Prentun_IngviHrannar

Önnur hugmynd var að búa til spjöld sem eru 'Þitt eigið Varúlfaspil'.

Það eru í raun tóm spil þar sem kennarinn og nemendur geta ákveðið hver er í hvaða hlutverki.... t.d. persónur í seinni heimsstyrjöldinni, persónur í bók eða einhverjir sem verið er að læra um. Hér getur þú sótt það:

Þitt_Eigið_Varúlfaspil_6xA4_Prentun_IngviHrannar

Hvernig á að gera 'Þitt eigið varúlfaspil?

1. Prenta spjöldin á þykkan pappír.2. Skera / klippa niður í jafn stór spjöld.3. Ákveða hver á að vera varúlfur, besti vinur, læknir, veiðimaður, sjáandi, litla barnið og svo bæjarbúar.4. Náðu þér í penna og tússliti.5. Merktu hvert spjald með réttri persónu. Kannski eru þetta persónur úr fjölskyldunni þinni, vinir eða persónur úr bók.6. Teikna mynd af hverri persónu á spjaldið þeirra.7. Finna a.m.k. 7 manns sem eru til í að spila með þér og einn sem kann leikinn og getur verið stjórnandi / sögumaður.8. Finnið ykkur a.m.k. 20-30 mín. og skemmtið ykkur vel :)

Leikurinn

Varúlfur er leikur sem á sér stað í litlu þorpi. Í þorpinu er enginn óhultur en á nóttunni fara varúlfar á stjá. Hver leikmaður fær sérstakt hlutverk: Varúlfur, læknir, sjáandi, litla barnið, besti vinur, veiðimaður eða bæjarbúi.... en það er hægt að bæta við hlutverkum að vild. T.d. að gamla konan fái að vakna öðru hvoru á nóttunni og víxla 2 spilum (hlutverkum) án þess að leikmenn viti hvort víxlað hafi verið hjá þeim.

Leikurinn þarf sögumann sem stýrir leiknum. Leikurinn er ýmist yfir dag eða nótt en á nóttunni velja varúlfarnir einn bæjarbúa til að éta. Um daginn vakna allir nema sá sem varð varúlfamatur og er hann úr leik. Ef sá sami var með eitthvert hlutverk (t.d. læknir) verður það ekki tekið fram fyrr en í lok leiksins. Hinir bæjarbúar skeggræða kringumstæðurnar og ákæra þann sem þeir telja líklegan til að vera varúlfur. Eftir umræður er kosning en þá kjósa bæjarbúar og sá sem fær flest atkvæði dettur úr leik. Ef sá sem var kosinn var ekki varúlfur þá fara bæjarbúar aftur að sofa og varúlfarnir fara aftur á stjá.

Markmið bæjarbúa er að komast að því hverjir eru varúlfar og reyna sannfæra hina að kjósa þá út. Á sama tíma þarf að gæta þess að vera ekki sjálfur kosinn út í misgripum fyrir varúlf.

Markmið varúlfanna er að sigra leikinn með því að útrýma öllum bæjarbúum. Hér reynir á kænsku og útsjónarsemi til að forðast ákæru og reyna að skella skuldinni á saklausa bæjarbúa.

Tenging spilsins við Aðalnámskrá grunnskóla

Þakkir fyrir yfirlestur og úrbætur á leiknum fá Klemenz Bjarki í Dalvíkurskóla og Daníella Hólm í Heiðarskóla (RNB).Góða skemmtun með ykkur nemendum, endilega deilið (t.d. á #menntaspjall á Twitter) ef þið spilið með nemendum og njótið vel.Ingvi Hrannar

Previous
Previous

Seesaw plaköt fyrir kennara

Next
Next

Himingeimur og reikistjörnur - Vika með 4.bekk